Færsluflokkur: Dægurmál
14.11.2008 | 12:01
Ónýttir tekjumöguleikar
NETVINNA Raunveruleg atvinna:
Það er löngu vitað að raunhæfur möguleiki er að hafa allgóða lífsafkomu af því að vinna markaðsvinnu á Internetinu. Greinin þróast hratt og allskyns hugbúnaður sem not má til aukins árangurs verður sífellt ódýrari og einfaldari í notkun. Fyrir þá sem koma nýir að "Netvinnu" virðist viðfangsefnið vera flókið og yfirgripsmikið. Fáir endast því eða ná teljandi árangri.
Þegar fólk hefur gengið langa leið og snýr frá straumhörðu vatnsfalli að óreyndu, bölvar það aðstæðum. Of miklir vatnavextir, of kalt, of hár bakki eða hvað annað sem það finnur til sem ástæðu uppgjafarinnar. Og hvern langar svo sem yfir á hinn bakkann? Tuldrar það í lokin.
Það sama á sér stað þegar fólk hættir án þess að leggja sig fram um að ná árangri í því sem óhefðbundið er eða lítt þekkt eins og IM (Internet Markaðsvinna).
Það þarf svo mikla tölvukunnáttu, segir það. Þetta er þvílíkur frumskógur og allt of flókið, segir það ennfremur. Ég mun aldrei botna í þessu. Og hvað er þetta svo sem eftirsóknarvert? Það verður enginn ríkur á þessu hvort sem er.
En er það svo? Heimamaður sem er þaulkunnugur aðstæðum við ána fyrrnefndu, getur leitt þig yfir á vaðinu þannig að áreynslulaust er og án áhættu. Þú finnur til sigurtilfinningar þegar komið er á bakkann hinumegin eins og þú hafir unnið þrekvirki. Sigurlaunin eru þau sömu.
Eins er því farið með óhefðbundna vinnu. Þiggðu leiðsögn þeirra sem þekkja leiðina og skyggnstu inn í leyndardómana án þess að formæla að óreyndu.
Velgengni fer ekki í manngreinarálit. Ef þú framkvæmir það sama og sá sem nær árangri og gerir það eins og jafn oft verður niðurstaðan sú sama. Það er loforð.
Láttu ekki hleypidóma eða kvíða við það óþekkta standa á milli þín og þess að ná verulegum tekjum með IM (Internet Markaðsvinnu) Þú getur skapað þér góða afkomu og stundað vinnu sem er eftirsóknarverð og nýtur vaxandi virðingar.
Ég ætla að hvísla að þér leyndarmáli. Það er leyndarmál í þínum eyrum núna en þegar við höfum svipt af því hulunni kemur í ljós að engin dulúð hvílir yfir því, heldur einföld en markviss tölvuvinna rétt eins og þú þyrftir að læra í sérhverri nýrri vinnu sem þér byðist og þú gengir að möglunarlaust.
Það er einfaldur vegvísir að verulegum tekjuauka á Netinu, rétt eins og góð uppskrift skilar þér ljómandi bragðgóðri köku farir þú eftir henni í einu og öllu. Jafnvel þó þú hafir ekki nokkra trú á því þegar þú blandar bökunarvörunum saman, þá verður niðurstaðan KAKA haldir þú þig við uppskriftina.
Fáðu senda Fría íslenska eBók um Markmið og Tímastjórnun. Smella HÉR
Kv.
Ol.
aleifurthor@gmail.com
http://leidtogaleit.com
Dægurmál | Breytt 26.12.2009 kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)